headerphoto

Íslandsmeistaramót barþjóna - 13. apríl 2009

Íslandsmeistaramóti barþjóna lauk fyrir skömmu og óskum við sigurvegurum innilega til hamingju með frábæran árangur.

Búið er að bæta sigur drykkjunum úr Fancy flokknum við í Fínir drykkir flokkinn, og þeir eru

  • 1. Food and fun - Höf. Anna María Pétursdóttir (Lækjarbrekka).
  • 2. Valkyrjan - Höf. Tómas Kristjánsson (Silfur Restaurant).
  • 3. Bóromir - Höf. Árni Gunnarsson (Skíðaskálinn / Vínbarinn).

Drykkirnir úr Flair og Keppni veitingastaða verða síðan bætt við á næstu dögum.

Hægt er að sjá myndir úr keppninni hér (myndir eftir Jón Svavarsson)

Óáfengir drykkir - 23. mars 2009

Þá er búið að bæta við nokkrum óáfengum drykkjum, hægt er að þekkja nokkra á nafninu einu því þeir byrja á "Virgin" en annars sýnir kerfið þá með fjólubláum ramma utanum sig í flokkunum

Drykkirnir eru:

Ef þið þekkið aðra góða óáfenga drykki, þá endilega sendið mér línu á drykkir@drykkir.is

Hugmyndir að nýjum fídusum - 22. feb 2009

Ég er búinn að vera að hugsa um hvað væri best að bæta við næst sem fídus í kerfinu og ég er svolítið fastur.

Hugmyndinn er að bæta við þeim möguleika að notendur geta bætt við sínum eigin drykkjum. Þeir drykkir væru aðskildir frá þeim drykkjum sem væru í kerfinu en það væri samt hægt að leita eftir þeim og gefa þeim stjörnur

Önnur hugmynd er að bjóða uppá góðan lista af óáfengum drykkjum og helling af fídusum tengdum því, einsog áfengisprósentu drykksins.

Ef þið hafið einhverja skoðun á þessu, þá megið þið endilega senda mér póst á drykkir@drykkir.is

Nýjir drykkir - 8. feb 2009

Fimm drykkjum var bætt við í dag, og eru þeir:

Notendur - 2. feb 2009

Nú geta notendur skráð sig inná síðuna, einsog er þá er lítið sem þeir geta gert en það mun breytast í náinni framtíð.

Nýtt ár - 4. jan 2009

Nú fer að styttast í næstu uppfærslu á kerfinu og inniheldur hún möguleikan á því að notendur geti skráð sig inn. Mun það ekki bjóða uppá mikið af möguleikum til að byrja með en bætt verður við það síðan í framtíðinni.

Skráningarferlið verður mjög einfalt, notendanafn, netfang og lykilorð. Svo þarf bara að staðfesta í gegnum netfangið og þá er notandinn orðinn virkur.

Það sem verður hægt að gera sem notandi til að byrja með verður að gefa drykkjum einkunn, velja uppáhalds drykki og senda inn þína drykki.

Búast má við þessari uppfærslu á næstu vikum.

Áramótagleði - 28. des 2008

Nú eru nýjárspartýin á næsta leiti hér eru drykkirnir sem eru kjörnir fyrir nýjársveisluna: Buck's Fizz, Mimosa, Bellini, Bombay Bellini

Einnig er kominn nýr fídus á síðuna, að drykkir geta átt tengda drykki. Dæmi um þannig drykki eru Bellini og Bombay Bellini.

Gleðileg Jól - 24. des 2008

Við óskum ykkur Gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Minnum á Brandy eggjapúnsið fyrir jólaveisluna.

Við ætlum að bæta við nýjum fídusum á nýju ári, og það væri frábært að fá hugmyndir um hvað ykkur finnst vanta (olafurw@gmail.com)

Nokkrir fídusar sem eru allavega á áætluninni er notendakerfi, þar sem að notandi getur búið til drykki og að aðrir notendur geta leitað eftir þeim. Möguleiki á að bæta við óáfengum drykkjum og leita aðeins eftir þeim, og að tengja drykki saman (t.d. ef að þú býrð til drykk sem að dregur af Manhattan)

Uppfærsla - 20. des 2008

Nýr fídus: Hægt er að flokka drykkjar listunum eftir nafni og hvenær þeim var seinast breytt

Nýjir drykkir: 3 nýjir drykkir (Hayride, Incredible Hulk, Sidecar) og einn nýr flokkur (Óflokkaðir drykkir)